halló ;*

halló;)

10.10.2006 13:01:37 / karen

bonitas ;*

Já.. góðan daginn ;)

Þaa er sko löngu kominn tími á blogg er það ekki :haha: juuú ég myndi eiginlega segja það! Er í fríi í einn tíma núna og svo er líka hádegishlé þannig að ég þarf ekki að mæta aftur í skólann fyrr en 20 min yfir 1 !! :D

En jaaá síðan seinast hef ég nú bara aðallega verið í skólanum og þannig.. um helgina... gerði lítið á laugardaginn, fór bara með vilborgu og skirni eitthvað út aðeins og fór síðan til Beggu og var hjá henni í smá tíma. Hitti hana loksins! J er búin að vera á leiðinni að fara til hennar heeeillengi sko!! Og það var bara gaman að hitta hana,höfðum um margt að spjalla ;P Síðan á sunnudaginn fór ég í barnaafmæli með vilborgu og skírni til Natalíu Nóttar sem er dóttir vina vilborgar og arnar.. fengum þar gómsætar kökur og svoleiðis ;P mmm...

Svo í gær var auðvitað bara skólinn! Var búin alveg um hálf  4. Var svo bara í allan gærdag nánast að læra, og um kvöldið líka..!! Í morgun var sko bara skólinn,var að vísu frí í einum tíma og svo kom ég heim aftur kl 12 og já fer aftur 20 min yfir 1 !!

Haha í gær þá var ég að koma heim úr skólanum.. svo eitthvað sé ég bara að vagninn hans Skírnis var fyrir utan hurðina og það var úlpa yfir vagninum og bara alveg fyrir opinu.. svo þegar ég kem inn og labba inní stofu til hennar fer  ég eitthvað að segja svona við hana bara: Vilborg!! Afhverju ertum með alveg lokað fyrir hjá Skírni..?! Á hann ekkert að fá loft og geta andað eignlega? Ætlarðu bara að kæfa hann og blablabla...... Vilborg bara neeee ég held að hann hafi það nú alveg fint, hann nær alveg andanum sko. Og verðu eitthvað svona hálfskrítin á svipinn. Þá lýt ég svona niður á gólfið og sé þá bara að hann liggur á leikteppinu sínu á gólfinu og er að leika sér! BEINT fyrir framan tærnar á mér!! 8-) hahahaha..... þetta var ótrúlega fyndið.. ég líka bara óóóó hehh jaaá :lol:

Jæja ég held að ég segi þetta bara gott... þarf að fara bráðum aftur í skólann! Oog já svo er ég að fara á eftir kl  4 í ungbarnasund með Vilborgu og Skírni Daða J hehe Vilborg fer að vísu með hann oní,ég verð bara á bakkanum og klæði hann úr og í.. og tek myndir ;) híhí...

Eeen já... bless í bili bara!! Og eeendilega commenta!! :lol:

 

 



-karen ;*

p.s. Er líka komin með aðra síðu með írisi,hildi,valgerði og freydísi sem er www.blog.central.is/bonitas_ /  endilega að kíkka á hana líka! ;) það verðu örugglega gert hellingur meira inná hana, setta myndir og þannig allavegna ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.09.2006 16:20:22 / karen

Danmerkurferð :)

Jæja nú skal ég drullast til þess að blogga!! - Þetta gengur bara engann veginn lengur! =) En já eins og flestir vinir mínir vita þá fór ég með allri minni hele familien til Danmerkur 16. sept og vorum við þar í 5 daga og þetta var alveg óótrúlega gaman! :D æði bara! versluðum helling(ég allavegana;) ) og gerðum margt skemmtilegt, fórum svo auðvitað í tvívolíð og svoleiðis skemmtilegt! en já við vorum 6, ég,mamma,pabbi,vilborg,arnar og skírnir daði :) hehe þetta var í fyrsta skiptið sem mamma fer til útlanda og bara í annað skiptið sem ég fer (fór til Færeyja í fyrra í skólaferðalag) en já allavegna þá fórum við þarna eins og ég sagði áðann 16. sept, vöknuðum um hálf 5 um morguninn og vorum svo mætt hress!! 8-) hehe í Leifsstöð um 5 leitið,fórum svo bara i loftið hvað rúmlega 7 og flugið var í tæpa 3 klt, hehe svoltið skrítið að hugsa til þess að maður er fljótari að fljúga til Danmerkur heldur en með ferjunni frá Dalvík til Grímseyjar! :o ótrúlegt ekki satt!! jaaá svona er þetta! :) oog jamm Siggi Bj. og Friðrika vinafólk pabba og mömmu sem búa í DK voru svo almennileg að ná í okkur á flugvöllinn :D en Friðrika þurfti reyndar að fara með lestinni til baka af því að við komust ekki öll í bílinn og já haha svo þurtum við að labba alveg endalaust langt um allann flugvöllinn nánast bara til þess að ná í farangurinn okkar! haha! Een já Siggi keyrði okkur í Magstræde 7 haha sem er gatan sem íbúðin er í þar sem við vorum og jaaá við skulum bara ekkert fara nánar útí það hvernig þessi blessuð íbúð var sem við fengum! 8-) jaájá sko hún er svona 200 ára gömul hún er reydar í gamla bænum og var alveg rétt við Strikið þannig að hún var alllavegana á góðum stað! en það er líka það eina sem var gott við hana!! neinei má ekki segja svona en hún var allavegana mjög gömul og svo inní herberginu þar sem við sváfum ég,mamma og pabbi var einhver eldgömul vínpressa huge stór!!:o og þið getið rétt ýmindað ykkur hvernig hún var! viðbjóðslegt ryk á henni og svona! 8-) en æj þetta reddaðist svosem allt við vorum bara þarna rétt svo á kvöldin og morgnanna vorum annars alltaf bara úti eða eitthvað. Daginn sem við komum út var æðislegt veður! uu þegar við vorum komin í íbúðina og búin að koma okkur fyrir og svoleiðis voru einhverjir sem lögðu sig,vorum frekar sifjuð sko! og fórum svo bara út þarna einhverntimann seinni partinn og fórum þá á Mama Rosa veitingastað þarna á Strikinu og fengum okkur að éta! Ég man svo ekki alveg hvað við gerðum um kvöldið,eða jú við fórum minnir mig bara út að borða á Mama rosa og svo löbbuðum við um í bænum skoða mannlífið og svoleiðis ;) - sunnudagurinn =) vöknuðum bara frekar seint, um hálf 11 (hihi sem er reyndar á dönskum tima þannig að kl var í rauninni bara hálf 9 hjá okkur) og vorum komin út um 12 c.a. held ég.og þá var farið í Tívolíið við vorum þar alveg til eitthvað um 4 og það var ótrúlega gaman :) vorum samt bara svona aðallega að skoða og svoleiðis ég fór þá held ég bara í 2 tæki eða e-ð fallturninn haha sem var gaman:D og svona rólu sem fer lengst upí loft og fer svo í hringi! það var bara gaman! var samt svoltið smeyk fyrst þorði eiginlega ekkert að horfa niður en svo var allt í lagi, hún var þannig að það sátu 2 og 2 saman og rólan hékk bara í örþunnum keðjum! haha ekki kanski mjög traustvekjandi!:S en já svo um 4 þá náði Siggi Bj í okkur og við fórum með honum heim til þeirra þau buðu okkur nefnilega í mat :) og það var alveg ótrúlega gaman að koma þangað til þeirra,þau búa í 25.000 manna bæ sem er svona 30 min að keyra til frá Köben.Húsið þeirra er rosaflott, hengirúm á pallinum og heitur pottur og svoleiðis :)en já við borðuðum hjá þeim og vorum þar allt kvöldið eiginlega og það bara gaman að koma þangað og líka að hitta þau þvi að ég hafði ekki séð þau í mörg ár og Logi og Máni synir þeirra sem eru 13 og 15 ára voða töffar ;) ég hafði ekki séð þá í nokkur ár! var oft að leika við þá þegar þau bjuggu á Akureyri en svo fluttu þau til DK fyrir 6 árum eða eitthvað, væri gaman ef við hittum þau oftar,en við stefnun bara að þvi að fara þangað aftur á næsta ári ;) ætlum að reyna það allavegna ;) - mánudagurinn,þriðjudagurinn og miðvikudagurinn fóru nú bara allir svona nokkurnveginn að minsta kosti í að kíkja svona aaaðeins í búðir 8-) *hóst* hahah jamm ég,vilborg og mamma vorum allavegna duglegar við það( þó að arnar og pabbi hafi kanski ekki haft aalveg jafn gaman af þvi svona ;) hehe en í staðinn fóru þeir bara eitthvað annað :haha: jájá! á mánudeginum vorum við minnir mig allavegna bara á Strikinu og löbbuðum líka yfir í Fiskitorfuna sem er moll og það var gaman að komna þangað líka;) eftir það tókum við bara leigubíl á KFC og fengum okkur að borða þar.. fórum svo bara heim :D síðan á þriðjud. vorum við á Strikinu og fórum svo í Field's sem er HUGE verslunnarmiðstöð!! eins af stærtu á norðurlöndunum! vorum þar þangað til seinnipartinn þá fórum við heim og svo um 8 leitið komu Vilberg og Bjarney til okkar og þau ætluðu að gista hjá okkur tvær nætur :) það var ótrúlega gaman að hitta þau og vera með þeim af þvi að þau eru að flytja til Noregs í 2 ár þannig að það er ekkert vist að við eigum eftir að hitta þau neitt þangað til =/ en já við fórum svo bara út og fórum á Jensen's Bufhouse og borðuðum þar ótrúlega gott :) vorum þar alveg til 11 eða eitthvað og fórum svo bara heim að sofa stuttu seinna ;) á miðvikudeginum fórum ég,vilborg,mamma,bjarney og skirnir bara á röltið á Strikið og svoleiðis en pabbi,vilberg og arnar fóru í Christaníu og voru þar allann daginn! hehe pabbi keyti sér hasspípu þar :'D hehe en það var nú bara minjagripur! var ekkert búið að nota hana! ;) oog svo bara um hálf átta um kvöldið fórum við aftur öll saman í tívolíið :) það var ótrúlega gaman!! =) fórum í fullt af tækjum voru mörg skemmtileg :) jájájá...vorum þarna til 11 eða eitthvað og váá hvað er flott þarna, ljósin og allt ótrúlega flott að sjá þetta allt svona þegar það er orðið dimmt!:O :D jamm svo var það bara fmmtudagurinn sem var eftir þá vorum við bara eitthvað að slæpast um... Siggi kom svo og keyrði okkur aftur á flugvöllinn, vorum mætt þangað rétt um 7 og áttum að fara í loftið hált 10 á dönskum tíma! fyrst þurftum við að bíða í röð við innritunina sem var súper löng og ekki tók betra við þegar við fórum í gegnum tollinn maður!! hún var sko bara jafnlöng og augað eygði!! Við vorum orðin svo stressuð öll þegar við vorum loksins búin að fara í tollinn það var svo lítill tími eftir að við náðum ekkert að skoða í fríhöfninni rétt náðum þvi að fá þarna TAX FREE dótið og hlupum svo bara nánst útí vél! flugum svo bara heim og vorum komin til landsins eitthvað 11 eða eitthvað að ísl tima! shit það var kalt að koma heim!! :/ svo fórum við og keytum slatta af nammi í fríhöfninni og fórum svo bara í Garðinn til frænda míns og gistum þar.... og þessi ferð var bara æðisleg!! :D þetta var alveg ótrúlega gaman og ég vona bara að við förum aftur næsta sumar þangað,ég gæti nú bara eiginlega hugsað mér sko að eiga heim í Dk.... það er svo gaman að vera þarna,og hjóla menningin þarna er snilld! það eru allir á hjólum!! Jæææja ég held nú bara að þetta sé orðið aaaalltof langt hjá mér en ég bara gat ekki hætt var alltaf meira og meira sem ég þurfti að segja! :'D jájá... - svo ætla ég að setja myndir úr ferðinni hérna inn,þarf bara að biðja einhvern um að sýna mér það (kann það ekki :S ) geri það mjöög fljótlega! :)

Jáá nú fer ég bara að hætta þessu bloggi,er held ég alveg búin að bæta upp þann tima sem ég bloggaði ekkert! er viss um að enginn nennir að lesa þetta sko! :D hahaha en endilega að kommenta samt gott fólk!! ;)

Síðustu dagar eru bara búnir að vera finir líka sko,ég var fyrir sunnan fram á mánud. af þvi að það var frí í skólanum á mánudaginn! flaug norður á mánud. kvöld en nei það var ófært á akureyri þannig að við lentum á sauðárkrók og þurfum svo að vera í rútu í 1 og hálfan klt!!! :O ekki mjöög gaman sko! hehe Fór svo líka á Footloose með Söru frænku minni á laugardagskvöldinu og það var ótrúlega gaman! Þorvaldur Davíð er nú líka ekkert smá flottur drengurinn!! :) Jamm það er nóg að gera í skemmtununum :) hehe var ball í Sjallanum á miðvikudagskvöld, Páll Óskar var DJ og það var ótrúlega gaman þar! ;) og svo var rósaballið í Glerárskóla á fimmtudagskvöld. var nú samt ekkert voðalega gaman þar,allt í lagi bara svona;) oog svo fór ég á skauta í gærkv, með Hildir og Valgerði,haha hef ekki farið á skauta sko í 2 ár eða eitthvað!

En jæja nú er ég hætt!! hehe og eeeedilega commenta :**

Karen :**


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 22:11:24 / karen

blogg?

Jææja...er ekki bara kominn tími á smá blogg? :) jújú held það bara,hef ekki bloggað í viku!! jahérna hér..

Een hvað um það,allavegna þá reyni ég að drita einhverju hérna á skjáinn núna :haha:

jaá við fórum þarna heim á fimmtudaginn seinasta ég,Vilborg og Skírnir Daði með flugi og það var bara finnt að skreppa svona smá heim ;) jájá...veðrið var nú ekki aalveg svona uppá sitt besta á meðan við vorum þarna þannig að ég var ekkert mikið úti! Fór að stokka bæði á föstud. og laugard. og það var bara mjög finnt að fá smá pening fyrir það,svona líka af þvi að við erum að fara út! =) gerði 2 bala á föstud. og 2 á laugard. een förum ekkert nánar út í það núna.

Já svo kom auðvitað Arnar þarna á föstudeginum líka,en hann lét nú lítið sjá sig þessa helgina,var svona aðallega uppá ey á einhverju gæsaskitteríi með Þór og Henning ;) hahaha! neinei þeir komu nú svona annaðslagið niðureftir.... ;) hehe! Já og svo var Johnny King eitthvað að spila á Kríunni og Vilborg,Arnar og mamma kíktu þangað aðeins á föstudagskv. þannig að ég passaði aðeins fyrir þau :) voru nú ekki lengi.. og svo var nú held ég ekkert gríðarlegt stuð..! ;) svo á laugardagskvöldið vorum við bara eitthvað að spila eg,vilborg,arnar og mamma, vorum í Picturenary (kann ekki að skrifa það) oog það var mikið hlegið!! Á sunnudaginn kom ég svo aftur hingað til Ak og fór þá bara aðeins uppí Skessugil og lærði eitthvað og þannig...fór svo bara til Mörtu og gisti hjá henni,fór svo bara í skólann næsta morgun....oog svo um kvöldið fór ég til Hildar og við fórum á opið hús í skólanum en það voru bara nánast engir þar... þannig að við fórum bara aftur heim til Hildar =) já svo í gær var göngudagur í skólanum,fórum 7- 10. bekkur í gönguferð uppað Hraunsvatni! oog það var sko lööng ganga sko!! hehe oog já svo var bara náttúrlega skóli líka í dag,var búin fyrst kl 12 og var þá í eyðu til 20 min yfir 1 og fór þá í Mósaík. en já held þetta sé bara komið gott,nenni ekki að blogga núna er bara að fara að sofa fljótlega,er eiginlega hálf lasin...þannig að..veit ekki alveg hvort ég fari í skólann á morugn,en örugglega samt;)

þangað til næst.....

-KAREN :* oog koma svo aðeins að commenta hérna,þið eruð alveg voðalega slöpp í því núna!! ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 17:22:05 / karen

Ætti ég að fara að blogga aftur?

Mér leiddist þannig að ég áhvað bara að fara að byrja að blogga aftur!er ein heima nuna Vilborg og Arnar skruppu útí ólafsfj. til ömmu og afa en koma aftur í kvöld en hinsvegar þá nenni ég ekki eilega að gera það ef að enginn ætlar að lesa það...og commenta :D hehe..það er allavegna alveg voðalega fátt um comment yfirleitt! Eeen nenni ekki að tala meira um það ;) uu já sko.. veit ekki hvar ég á að byrja..ég held nú bara að ég hafi ekki bloggað síðan í sumar einhverntimann í júlí eða eitthvað :S ehh..!

Núna er ég á Akureyri og bý hjá Vilborgu systir og Arnari,og svo auðvitað nýjasta fjölskyldumeðliminu ;) sem er auðvitað alveg æðislegur:* jaaá ég er semsagt hjá þeima eins og flestir vinir mínir vita vegna þess að ég er í skóla hérna á Ak. Það er alveg finnt sko :haha: gaman að hitta krakkana og svona,þetta er allavegna alveg ágætur skóli sem ég er í! Og fínn bekkur sko sem ég er í! Jájá....ég er bara búin að vera seinustu daga auðvitað í skólanum og læra og þannig,það tekur sinn tíma skólinn og svo heimavinnan!! Svo er ég að fara að skreppa heim á morgun í helgarfrí,er nú samt bara að fara af þvi í Vilborg,Arnar og Skírnir eru líka að fara :) og komum svo aftur bara á sunnudaginn,ég,Vilborg og Skírnir og Arnar held ég á mánudaginn :) þannig að það verður bara gaman;)

Og svo erum við auðvitað að fara til Danmerkur 16.sept ég,mamma,pabbi,Vilborg,Arnar,og Skírnir Daði og ég og við öll náttúrlega erum orðin mjög spennt :D Ég get varla beðið sko..!! Þetta verður bara svona borgar ferð í 5 daga og þar sem ég hef nú bara einu sinni komið til útlanda(ehh sem var til Færeyja í fyrra) að þá verður þetta gaman!:D Það styttist óðum í þetta bara rúmar tvær vikur eða svo! hehe =) það verður gaman.Ætlum heldur betur að taka allavegna einn dag í tívolíið :haha: og svo auðvitað verslunarferðir og þannig:) Eeen jæja er þetta ekki bara komið gott? Ég lofa svo að vera dugleg að blogga;) blogga örugglega bara næst þegar ég kem hingað aftur úr eynni!

Og endilega að commenta og segja hvað ykkur finnst :haha:

-karen ;)

p.s. ég er svo að fara að bæta einhverju meira inná síður,biðja einhvern að kenna mér að setja myndir inná og þannig :$ ehh kann það ekki...


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 22:26:37 / karen

sumarið er tíminn..

Já góða kveldið kæru landar :haha:

Frá mér og mínum er bara allt gott að frétta sko :) jájájáj....ég og mamma erum búnar að vera uppá fastalandinu hér í 2 vikur ...hehe jájá og erum örugglega ekkert á leiðinni heim neitt aalveg strax! en samt svona fljótlega eftir versló...veit ekki alveg hvernar. Og já svo er bara skírn á sunnudaginn hjá Vilborgu og Arnari og svoleiðis...Een ég bara nenni ekki að blogga neitt núna..þannig að ég bið að heilsa! og eitt enn...

svara þessu :)

1; Síminn minn er [númerið] ?
2; Er ég á föstu ? 
3; Hvenær á ég afmæli ?
4; Hver er besti vinur minn ?
5; Hvar hittumst við ?

6; Hefur þig eikkern tímann dreymt um mig ?
7; Lýstu mér í 3 - 5 orðum !

8;
Ef þú mættir spyrja mig að hverju sem er , hverju myndiru þá spurja mig að ?
9; Ég er _________ stelpa sem þú veist um !
10; Mynduru vilja kyssa mig ?


                 


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 12:25:49 / karen

sjóstöng!frí? sumarið er tíminn... :)

Já góðan daginn :)

 

Langt síðan ég hef bloggað hérna sko....hehh :S ææ þetta blogg sem ég skrifaði seinast var nú eitthvað frekar skrítið sko! Hehe....jáá! En allavegna þá fór ég þarna heim á fimmtudagskvöldinu með ferjunni og mamma líka og fullt af fólki sem var að fara á sjóstöngina fórum þarna af stað eitthvað um hálf 8 áttum samt að fara kl: 7 en tafðist eitthvað! Og já þetta var ágæt ferð,ruggaði svoltið mikið og sumir urðu sjóveikir bara :S en ekki ég:haha: neinei ég slapp í þetta skiptið...! Já svo var bara sjóstöngin þarna um helgina! Í skítaveðri!! Á föstudeginum fór ég niðrá bryggju með Beggu þegar ferjan kom að taka á móti Höllu Sibbu og Arnari með henni og svo  var farið í krakkaveiðina kl 4 og ég fór með það var alveg gaman en samt var drullu bræla hehe...báturinn ruggaði frekar mikið en það var samt allt í lagi,þetta var bara gaman...og já svo komum við til baka um 6 þá var farið í að landa aflanum og svoleiðis....var víst ekkert gífurlega öflug veiðin þetta árið en það voru þó samt einhverjir stórir fiskar!:haha: jaja..Ég fór svo bara heim í sturtu og svona og græjaði mig fyrir grillið í féló sem var kl 8! Voru grillaðar pylsur og svo var verðlauna afhending fyrir krakkaveiðina. Einhver strákur veiddi geðveikt stóran þorsk sem var 21.5 kíló óslægður en  17.5 kg slægður..! :o Eftir þetta allt eða um 11 fór ég eitthvað út með Hildi og Júíu út! Fórum bara eitthvað út að labba í grenjandi rigningu hehe og það var gaman hjá okkur...hehe jájá...vorum úti til æj man ekki 12 hálf 1 eða eitthvað.! Svoo umm já laugardagurinn...fullorna fólkið fór í veiði...áttu að fara kl 6 um morguninn en fóru kl 8 vegna veðurs eða eitthvað bull! Ég fór að vinna í sundlauginni hálf 3 til 4 fór þá niðrá bryggju að sjá þegar þau komu að! Var samt eiginlega ekkert gaman þar! Alveg ágætt,hefur verið skemmtilegra allavegna! Svo fór ég aftur í sundlaugina frá hálf 6 til 7 þá var lokað,var með Sonju vorum svo að þrífa til eitthvað að verða 8 fór þá bara heim að græja mig fyrir grillið í féló! Hehe var aftur en þá var grillað kjöt og eitthvað! Svo var verðlauna afhending og eitthvað svo var fjöldkulduball frá 10 til hálf 12 eða e-ð fórum út þegar það byrjaði ég hildur og júlía,vorum bara að runta á milli þarna eitthvað löbbuðum eitthvert og fórum aðeins suðreftir en nenntum samt ekki að vera á ballinu,fórum heim eitthvað aðeins,Begga og Halla komu heim að fá að slétta á sér hárið og svo fórum við aftur út og svo í féló og e-ð :haha:vorum heima í tölvunni til hálf 2 þá þurfti Hildur að fara að passa með Rebekku! Ég fór svo bara að sofa þarna um 3. Vaknaði svo kl hálf 2 daginn eftir..jaja ég nennti ekkert á fætur fyrr,var finnt að sofa svona lengi :D man ekki alveg hvað ég gerði á sunnudeginum fór allavegna niðrá bryggju þegar ferjan fór aftur! Jájá svona var sjóstöngin,var alveg ágæt skomm,veðrið hefði mátt vera betra en svona er þetta,þettað var alveg finnt! Svo er vikan bara búin að vera þannig stokka og eitthvað bara ekkert merkilegt,stokkaði mánud,þriðjud,og fimmtudag í gær! Fór þarna um hálf 4 í gær að stokka og var að stokka til 7 með pásum og svoleiðist,var svo heitt þarna inni var að kafna!! :o Ólarnir eru að fara allavegna i mánaðarfrí þannig að ég hefði alveg getað bara geymt línuna þangað rétt áður en þeir fara aftur á sjó eins og Hennig sagði! Haha ojj! Yrði orðið illa úldið vinur!! En já svo þreif ég stæðið mitt hátt og lágt og var búin hálf 8 or sum..! Við ætluðum að fara í land í dag með ferjunni en vorum svo bara að pæla í að fara í kvöld,(gærkvöldi semsagt) pabbi kom niðreftir til okkar og sagði okkur mömmu að það væri að koma fokker á eftir,kemur nú vanalega bara einhver twin otter heim og sagði að við gætum farið með fokkernum. Mamma var búin að stokka á undan mér þannig að hún var komin heim á undan mér og svo þegar ég kom heim sagði pabbi bara að ég og mamma værum að fara með vélinni,þannig að ég dreif mig í að pakka niður og fara í sturtu og ég var á milljón að flýta mér! :o haha fokk ég hef örugglega aldrei verið jafn fljót í sturtu og pakka niður á sko innan við klukkutima! Hehe! Þannig að já við fórum í loftið hálf 10 or sum ég sat hjá Huldu Signýju og mamma hjá Óla Bj.var geðveikt skritið að fara með fokker frá Grímsey! Hehe... vorum bara 20 min á leðinni voru samt pínu skopp þegar hún lækkaði flugið!! Vilborg náði svo í okkur á flugvöllinn og við fórum bara beint í Skessugilið! Það var stappað á flugvellinum af fólki!Arnar var búinn að baka vöfflur þegar við komum og við borðuðum þær :D ótrúlega góðar hjá honum! ;) hihi pabbi Laufey og Rúnar komu svo á bát til Dalvíkur um 1 og komu hingað svo Laufey og Rúnar komu aðeins í heimsókn og svo bara fórum við að sofa um 3 eða e-ð! Erum svo bara að fara í sumarfrí núna í sumarbústað ég mamma og pabbi á egilss. Og svo veit ég ekki alveg hvað við gerum eftir það en verðum hérna í landi eitthvað!

En þetta er bara orðið alltof langt blogg hjá mér sem ég er viss um að enginn nennir að lesa! :haha: hehe...

En við heyrumst síðar og ég bið bara að heilsa ykkur og endilega commentið á þetta ofurblogg mitt hehe;) þangað til næst (sem verður eftir langann tima sennilega)

-Karen biður að heilsa og er farin í FRÍ !! :haha:

  


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 12:03:33 / karen

Það er spurning...

Jaaá...það er spurning hvort maður komist heim fyrir sjóstöng!?!? :o Veðurspáin virðist eitthvað vera að stríða okkur Grímseyingum og ég er brjál!! Mig langar svo til þess að vera á henni en veðurspáin er ekki góð þannig að þá á kanski bara að hætta við hana og ég er alls ekki sátt!!:^) búhú...en það þýðir ekkert að gráta þetta,er svosem sama aðég komist ekki heim ef að hún yrði ekki...en ég nenni ekki að blogga núna svo að ég bið bara að heilsa!!

-Karen sem er í djúpum skít kveður..!! :S :lol:


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 13:32:36 / karen

Landsmót hestamanna... :)

Daginn... jájá af okkur er bara allt gott að frétta lilli er bara hinn sprækasti og hann er alveg æðislegur :haha: jájájá...Erum ég  og mamma búnar að vera hérna á Ak í viku og ég býst bara við því að við komum heim á miðvikudag,kanski samt á föstud. Jájá...mig svona bæði langar heim og ekki! Gaman að vera hérna en líka samt gott að vera heima! :haha: sakana Beggu !! ooog ég þarf nú svo líka að fara að stokka aftur svona rétt áður en þeir fara í mánaðarfrí!!:O Hef ekki hugmynd um hvað ég fer að gera þegar þeir fara í frí á Óla Bjarnasyni..kanski bara í þessa bæjarvinnu en æj ég nenni því nú samt varla....fæ kanski bara að stokka hjá einhverjum örðum,ekki það að ég myndi ekki getað bara verið í fríi! Væri nú samt mjög gott að hafa einhverja vinnu!hehe ;) jájá svona er þetta allt saman... :D Ég,mamma og pabbi skelltum okkur á Landsmót hestamanna þarna seinni partinn á laugardaginn...og það var bara gaman sko!! Snilld bara .... J uu já við fóurm út eitthvað um milli 1-2 þarna á laugardaginn og löbbuðum aðeins inná Glerártorg og svo niðrí bæ! Var einhver slatti af fólki niðrí bæ útaf þarna Landsbankahátíðinni Snorri Idol var að syngja og e-r fleiri en ég missti af honum! Svo fórum við aðeins inní nýju BYKO verslunina og löbbuðum smá hring þar og átum svo eina “lufsu” þar...!! Svoo keyrðum við af stað austur til Skagafjarðar vorum komin þangað á Vindheimamela þar sem mótið var um hálf 5 held ég,keyrðum þarna að hliðinu þar sem miðasalan var og það átti að kosta 19.000 fyrir okkur þrjú bara fyrir að fá að vera þarna í nokkra klukkutíma!! :O Fórum aðeins í Varmahlíð og vorum svona að hugsa um það hvort við ættum að fara að borga þetta fyrir að vera svona stutt þarna....en jájá svo bara áhváðum við að gera það :D Og sáum bara alls ekkert eftir því að hafa gert það...það var bara helvíti gaman þarna...hefi samt að vísu alveg hafa haft Sunnu þarna líka :haha: hún ætlaði nefnilega að koma með okkur en svo að því að Gyða veiktist gat hún það ekki,varð að vinna! J það var allt í lagi...vona bara að hún Gyða sé farin að hressast aftur! Jájá,..en já allavegna fannst mér geðveikt gaman þarna...tók fullt af myndum en kann bara ekki að setja þær inná síðuna :S hehe! Það var allavegna alveg fullt af sætum strákum þarna  sko....hehe :hehe: jájá hellingur...! En við vorum þarna í einhverja 9 klukkutima frá hálf 5  til hálf 2 enduðum kvöldið á Papa balli og það var bara fkn snilld! Voru geðveikt góðir!! Jámm við lögðum af stað kl hálf 2 um nóttina heim og vorum komin inná Ak um 4 um nóttina! Hehe ég var víst búin að sofna eitthvað í bílnum og eitthvað...! Var samt leiðinlegt þarna banaslysið um morguninn! Ojj! Voru víst einhverjir krakkar á leiðinni heim af landsmótinu,....!

 

 



Jæja komið bara nóg blogg hjá mér held ég og vona að einhver nenni að lesa það! :haha: Ég veit ekki alveg hvað við gerum í dag en ég ætla allavegna að fara eitthvað oní bæ á eftir!

Verið svo alveg endilega dugleg að skrifa í gestabókina og commenta á bloggið! Hefur held ég ekki verið skrifað í gestabókina í nokkra mánuði eða ekkað! :O hehe en já við bara heyrumst síðar og ég bið bara að heilsa ykkur í bili ;)

 

-Karen out! ;**    


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 01:36:35 / karen

jæææjaa :)

Jáá....þá er það bara búið það sem við erum búin að bíða spennt eftir i fjölskyldunni :) kominn lítill strákur hjá þeim Vilborgu minni og Arnari :haha: oo hann er svo æðislegur...!! vorum komnar uppá fæðingardeild ég og mamma kl hálf 9 í kvöld og hann var fæddur kl: 21:23 og var 15  merkur og 52 cm,aldeilis flottur og fallegur strákur :) Hann hefur heldur betur ekki ætlað að láta bíða eftir sér ;) ´(Vilborg var skrifuð inn á morgun 27.06.06. en hann fæddist 26.06.06 :) ) maður var bara með tárin í augunum þegar maður kom inná fæðingardeildina til þeirra  :cry: :D Ég og mamma drifum okkur í hasti í land í dag með ferjunni,ætluðum að koma á miðvikudaginn næsta þannig að við pökkuðum niður á klukkutíma eða e-ð og drifum okkur með ferjunni í dag! pabbi og Laufey komu svo á bátnum og voru komin uppeftir um hálf 11 :* Hann er sko aldeilis flottur lilti sæti frændinn minn og falleg fjölskylda:*

Ég áhvað að skrifa bara svona smá blogg í tilefni af því að krúttið er komið í heiminn;* er komin upp í rúm núna heima hjá Vilborgu og Arnari og er að fara að sofa og þau auðvitað uppá fæðingardeild þannig að við erum bara ein hérna :* En já ég mun von bráðar setja mydnir inná síðuna af litla guttanum og vona að litla fjöskyldan braggist bara vel :** þangað til næst bið ég bara að heilsa og endilega commentið á bloggið ;)

 -Karen kveður;*  


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 17:25:00 / karen

Hæ hó jibbí jey...!! :D

Daginn hér!

Já frá mér er bara allt gott að frétta :haha: jájájájá... hef ekki bloggað í viku vegna þess að ég hafi eilega ekkert til að blogga um :S :D sko umm já..... í dag er 17. juni hehe ég og mamma fórum í félagsheimilið um kl 1 og ég keypti mér gasblöðru og nammi og það var fullt af fólki þar... fórum svo fullt af liði útá fótboltavöll í einhverja leiki oog það bara finnt :'D haha ég er svo mikill auli já við´fórum semsagt í leiki úndir stjórn Monu og Bubbu einn leikurinn sem við fórum í var svona boðhlaup eða þannig... í liðinu sem ég var í voru; ég,Ída,Jói,Henning,Alli,Þór,Rúnar,Nid, mann eki hvort það voru fleiri og svo í hinu liðinu voru fullt af krökkum bara; Vala,Siggi,Júlía og einhverjir litlir líka en já allavegna þá áttum við að rúlla bíldekki á undan okkur nokkra metra og svo labba 10 hringi með í kringum skóflu með hausinn á haldinu og rúlla svo dekkinu til baka og svo þegar ég átti að gera fór ég þessa tíu hringi og það hefði örugglega liðið yfir mig ef að ég hefði farið einn hring í viðbót vegna þess að ég varð svo ringluð haha!! svo þegar ég fór til baka með dekkið þá flaug ég á hausinn haha og steinlá á grasinu....

eenjájá  svo bara fórum við á Kríuna að éta og eitthvað..! Segi þetta bara gott í bili Bless bless. og endilega að commenta :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 12:03:44 / karen

jáá,góðan daginn!

Jæja kæru landsmenn,ég hef tekið uppá því að fara að blogga aftur! Eeen....bara ef að þið commentið og skrifið í gestabókina! annars ekki!! :haha:  

jájájájá....Sjómannadagurinn í gær..! gamangaman :haha: haha...vaknaði um 12 í gær og þaut niðrá bryggju þar sem voru einhver skemmtanahöld. Belgjaslagur og æ þarna rólan yfir höfnina !! var þarna að þvælast bara eitthvað til 2,fór þá heim og fórum svo familyan í kaffi í féló kl 3 :haha: ogsvoogsvo...uuu já ég fór bara heim og nördaðist eitthvað í tölvunni! Fór út í svona korter eða eitthvað eftir kvöldmat með Júlíu í grenjandi rigningu...sem var btw.....allt í lagi bara! Veit ei hvern fjárann ég mun gera af mér í dag,...eitthvað sniðugt bara :P híhí! allavegna ekki að láta mér leiðiast..    mamma var eitthvað að pæla í því hvort að við ættum að fara í land á föstudaginn,erum boðin í brúðkaup víst á laugardaginn..(17.juni) een veit ekki alveg hvort við förum,er ekki alveg að nenna að fara koma heim og fara svo aftur eftir nokkra daga þegar hún systir mín ætlar að eiga (hvenar sem það verður..) er svo líka að stokka þannig að veit ekkert hvort að einhver geti tekið við! jááá...ég er nú samt engannn veginn að nenna að vera hérna út í rassgati lengur! hef voða lítið að gera sko.. ekki eins og það séu margir hérna sem maður getur verið með..

en jæja,það þýðir voða lítið að kvarta svona,hlustar enginn á svoleiðis bull!! :D er að pæla í að segja þetta bara gott og fara út á trampolinið eða eitthvað!

P.S. ef enginn nennir að commenta og eða skrifa í gestabókina hætti ég alveg með síðuna...það nenna svo fáir að skoða hana!

þangað til næst...(sem verður fljótlega) skeður bara voða lítið merkilegt hérna þessa dagana...

- Karen kveður! :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 20:30:27 / karen

..!

 ...uu já..ég nenni ekki að blogga núna en ætlaði bara að segja að ég fer í skólaferðalag á morgun og kem ekki heim fyrr en á sunnudaginn,þannig að ég blogga örugglega bara þegar ég kem  til baka! svo að..

bæbæ:*

- Karen :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 23:30:56 / karen

kominn tími á blogg?

jæja er ekki bara kominn tími á smá blogg? Jú veistu,held það bara! :D hehe

Een jáá...það er margt og mikið búið að ske á undanförnum dögum....próf í skólanum sem ég btw kláraði í dag og þarf þar af leiðandi ekkert að taka fleiri próf í þessum skóla!! :D jibbíí! hehe! Það stittist svo líka óðum í að skólinn verði bara búinn :D og þá tekur bara við vinnan og eitthvað...híhí. Eeen svona kanski það merkilegasta hjá mér sem gerðist síðan seinast er það að ég var fermd þann 13. mai með henni Hildi Ösp,og vá það var skemmtilegur dagur get ég sagt þér! haha! frábær! athöfnin var kl 2 í kirkjunni og svo veislan í félagsheimilinu strax á eftir :) við fengum margt og mikið í fermingargjafir...skrifa kanski listann á eftir! En allavegna þá vil ég bara þakka öllum fyrir þennan dag sem var frábær! :* það komu 9 gestir eða eitthvað til mín úr landi. Á föstudeginum kom Jóna Bergrós frænka mín með ömmu sinni og afa og svona meiri parturinn af þeim degi bara í eitthvað trampolin-skopp haha! gaman það..! svo fórum ég,hildur,mamma,pabbi og sigrún í kirkjuna með prestinum á æfingu fyrir ferminguna um kvöldið.

uuu jáá þetta er svona bara það helsta sem ég hef að segja híhí! svo er það auðvitað Eurovision annað kvöld....og ef ég á að vera hreinskilin þá er ég bara fegin að Silvía Nótt hafi ekki komist áfram sko! áhvað samt svona að blogga eitthvað smá svo að síðan myndi nú ekki endanlega deyja út! Ætla svo bara fljótlega að setja inn myndir úr fermingunni og einhverjar fl myndir kanski ;) hehe....een þangað til næst!

 

já....smá svona það helsta sem ég fékk í fermingargjöf:

fartalva

utanlandsferð

rúmlega 200.000. í peningum

hestur

5 hálsmen

2 armbönd

2 rúmföt

webcam

oog hellingur í viðbót :)

Karen kveður að sinni! Bæbæ :*

p.s. og munið svo að vera dugleg að kvitta í gestabókina og að commenta :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 21:08:15 / karen

komin heim barasta...

góða kveldið...

...jæja þá er ég víst komin heim aftur..:!: Sem er alveg finnt en hefði samt viljað hitta krakkana það ekki! Ég ætlaði að hitta Beggu eitthvað meira..hitti hana 3 eða eitthvað!sakna allavegna þeirra þarna sem eru uppá þurralandi...uhu!! neei djók þýðir ekkert að grenja,ef maður ætlar að búa hérna!! ;) hehe! En já hvað með það allavegna þá kom ég heim eins og ég sagði áðan í gær með flugi og mamma líka að vísu. Fórum á Subway í hádeginu og Marta systir mömmu fór líka með okkur..mmm elska þennan mat þarna! samt eitt gott við að Subway er ekki hérna í Grímsey(haha sem líka mindi aldrei ske að Subway yrði hér..) er það að ég myndi fara þangað á hverjum degi,þá myndi ég bara fá ógeð á því! :O..Við Vilborg systir vorum bara einar á laugardagskvöldinu og fórum bara á Bautann að fá okkur að éta og áhváðum svo á seinustu stundu eða kl 10 min í 10 að fara í bíó,ætluðu að fara kl 8 Vilborg vildi fara á Rauðhettu en ég nennti því ekki þannig að svo allt í einu mundi Vilborg að "Faliure to lunch :kann ekki alveg að skrifa það =/ var kl 10 þannig að við fórum á hana,ágætis mynd þar á ferð! Jáá og svo bara sit ég hérna núna og er að reyna að krassa eitthvað á þetta blogg sem enginn nennir að lesa :O haha!! gerði lítið skemmtilegt í dag,fór í skólann og var í allan dag að læra nánast!hahh gaman! / var víst ekki alveg ´nógu dugleg að læra á meðan ég var í landi..ehh! já alveg rétt fórum öll familyan til Ólafsfjarðar í sveitina til afa og ömmu á sunnudaginn af því að amma var 70 ára! fórum um kvöldið og héldum henni veislu en hún vissi samt ekkert af því að við værum að koma,var ekki heima svo þegar þau komu heim var búið að uppdekka borð með fullt af kökum og svoleiðis ! :haha: við fórum með lítinn kettling sem við ætluðum að gefa ömmu í afmæliðsgjöf alveg hrillilega fallegan! een nei,hún vildi ekki eiga hann! =/ hann var alveg brjál í bílnum á leiðinni útí Óló en sofnaði samt eitthvað og líka á leiðinni til baka..! algjört krútt! haha. Ætla svo að reyna að setja einhverjar myndir inná síðuna svona þegar liggur vel á mér næst...og já,einugsin 10 dagar í ferminguna mína! undirbúningurinn við það að ná hámarki! svo eru bara fullt af afmælum og eitthvað í mánuðinum! brjálað að gera, ferming,afmælin,skólaferðalag og eitthvað þannig!! Svo á Vilborg systir líka að eiga í næsta mánuði :D

Jæjanenni ekki að blogga meira núna.!! Verið svo duglegi að commenta og gestabókin bítur ekki!!

þangað til næst...

Karen kveður!-


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 12:40:56 / karen

jájá... :)

ætlaði bara að segja að ég var að gera svona "karen?" sem er bara svona eitthvað um mig! nenni ekki að blogga núna er að fara að fá mér að éta og svoleiðis núna en blogga í kvöld,ef að ég fer ekki út í ólafsfjörð með mömmu,og allri familíunni!

það er allt að ske... á eftir að skrifa eitthvað um vini mina og svoleiðis dóterí!

svo að...bæbæ! ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Litli sætasti frændinn minn :*